Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Gerðist svakalega hratt..

við komum keyrandi upp reykjaveginn á leiðinni heim þegar við sáum að tveir bílar voru stopp hlið við hlið og búið var að bera einn einstakling út úr öðrum bílnum, 30 sek síðar sáum við svo reyk koma upp úr öðrum bílnum og örugglega 3 mín síðar var bíllinn alelda og eldur byrjaður að læðast í hinn bílinn. Það komu háværar sprengingar og fólk safnaðist þarna saman. Nokkrum mín síðar kom svo sjúkrabíll, lögga og slökkviliðið. Það er alveg ótrúlegt hvað það var stuttur tími frá því að það var smá reykur og þangað til bíllinn var alelda og dekkin sprungin. Vegfarendur hlúðu að manninum í grasinu þarna rétt hjá þangað til sjúkrabíll kom..

 

..   .


mbl.is Eldur í tveimur bifreiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvaran tekin við..

Þegar byrjar að rigna í Rvk er komið haust og þá byrjar skólinn. Það er byrjað að rigna í Rvk, það er reyndar nokkuð kósí þar sem við búum í ris-íbúð og það er svona sumarbústaðarfílíngur að heyra rigninguna lemja í þakið Smile Annars erum við búin að vera í 10 daga í 35 stiga hita í New York, frábær ferð fyrir utan smá bólgna löpp hjá mér (að ástæðu lausu) ég var hölt í nokkra daga og með vinstri fót eins og fíll Errm Við versluðum ekkert svakalega mikið, enda dollarinn frekar hár þessa dagana og útsölurnar að klárast. Hver segir svo sem að maður þurfi að eyða endalausum pening þegar maður er í sumarfríi? Afslöppun er nauðsynleg, Loftur er búinn að vera að vinna eins og brjálæðingur í sumar. Þó að Manhattan sé kannski ekki staðurinn sem kemur fyrst upp í hugann þegar maður hugsar um afslöppun þá er voða kósí að vera þar Wink við fórum t.d í nudd, á vaxmyndasafn og í Bronx zoo sem er risa stór dýragarður, á leiðinni þangað komst ég í augnsamband við risa rottu sem var að gæða sér á afgöngum í ruslatunnu, ég kastaði vatnsflösku beint í hausinn á greyinu (óvart) og gekk svo í burtu með gæsahúð niður í tær!! Sick Toppurinn á ferðinni var svo að fara í hestvagni um Central Park á afmælinu mínu, frekar fyndið að vera á hestvagni í umferðinni á Manhattan Tounge

eg og bon jovi  P8292076  P8292126

Stella Rán var svo elskuleg að klukka mig og ég tek auðvitað þátt í því Wink

Fjögur störf sem ég hef unnið við:

Fjarðarbrauð - afgreiðsla og ýmislegt

Fjarðabyggð - flokkstjóri og yfirflokkstjóri

Félgasþjónusta Kópavogs- liðveisla og persónuleg tilsjón.

Reykjavíkurborg - leiðbeinandi

Fjórar bíómyndir sem ég hef horft oft á:

Pay it forward (klárlega uppáhald)

Borat (var góður, það er best að horfa á grínmyndir með Malla frænda LoL)

Grettir (hef sjaldan hlegið jafn mikið)

Elf (allar jólamyndir eru góðar Wink)

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Sæbakki - Neskaupstað

Árblik - Neskaupstað

Laugateigur - Reykjavík

Heiðargerði- Reykjavík 

Fjórir sjóvarpsþættir sem ég horfi á:

Simpsons

Nágrannar

Despó

Grey's Anatomy

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

Íslenska leiðin, stjórnmálafræði (tilneydd)

Held það séu bara skólabækur (man ekki eftir neinni eins og er allavega)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Tyrkland

New York

Costa del Sol

Neskaupstaður

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

vísir

mbl

ugla.hi.is

Facebook

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

heimatilbúin pizza hjá mömmu klikkar sko ekki Tounge

Lambalæri - sett inn um hádegi

Kjúklingur - sérstaklega kjúklinga baguette (margir sem öfunda mig af því að búa með kokki, hehe)

tertur- fátt betra en jólaboðin hjá Jóhönnu frænku þar sem allir koma með eina sveitta tertu Cool


Höfundur

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég er 23 ára Norðfirðingur :) Ég er að læra félagsráðgjöf í H.Í og bý með kærastanum mínum, honum Lofti í Reykjavík..

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • .
  • ..
  • P8292126
  • P8292076
  • eg og bon jovi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband