1.apríl

Ég er ekki frá því að fólk sé búið að vera að reyna að gabba mig í allan dag, mig langar rosalega að fara niður á bryggju og fylgjast með öllu fólkinu sem fer að skoða snekkjuna hans Saddam Hussein LoL Mér finnst svona saklaust grín í góðu lagi , en sumir fara nú yfir strikið..

En annars var helgin fín, fórum á leik með Þrótti- HK á föstudagskvöld og var hann svakalega spennandi, Hk var komin í 2-0 þegar okkar stúlkur tóku sig á og unnu leikinn, en ekki hvað! Fengu svo bikarinn langþráða Cool Á laugardeginum fór ég svo ein á leikinn þar sem Loftur var að vinna og þróttar stúlkur unnu HK aftur, frábært að fylgjast með þeim. Við erum jú bæði með reynslubolta og svo ungar stelpur, held að það séu bara þrjár sem séu eldri en 20 ára og Jóna Guðlaug er með  þeim eldri LoL

Á laugardagskvöldið fór ég svo með Þrótti á lokahóp Blí og var það bara svaka stuð, lið ársins í 1.deild kvenna voru bara frá Þrótti Nes og ég er ekki viss um að það hafi gerst oft áður, að allt lið ársins komi frá sama félaginu.. Jóna Guðlaug fékk 4 bikara og Bobba 2, Kristín Salín 1 og Erla Rán 1 og svo Abostolov 1 Wink þemað var hattar og höfuðfat og við vorum með kórónur 123

 

 

 

 

 

 

Sunnudagurinn fór svo í rólegheit þar sem ég var að kafna úr kvefi.

Núna er það svo bara lærdómur og páskaegg, það má þótt páskarnir séu búnir Wink

páskaeggið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það var svaka stuð á árshátíðinni:), smitaði ég þig nokkuð;S?

en heyri í þér.

Helena Kristín (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 15:23

2 Smámynd: Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

já það var stuð :) en nei nei Loftur var búinn að smita mig áður en þú komst, hann er  meira að segja ennþá kvefaður :S

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 1.4.2008 kl. 15:41

3 identicon

ég ætlaði einmitt að fara að kvarta.... kominn tími á blogg haha  og já það má sko borða mjög óhollt þegar við erum að læra og svona... þú klárar kannski tópasinn þinn við tækifæri

Magga (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 18:29

4 Smámynd: Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

hehe kannski ég bjóði ykkur með mér, pakkningin er orðin snjáð, annars á ég tvo pakka eftir

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 1.4.2008 kl. 21:27

5 identicon

hehe ókei ;).

Helena (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég er 23 ára Norðfirðingur :) Ég er að læra félagsráðgjöf í H.Í og bý með kærastanum mínum, honum Lofti í Reykjavík..

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • .
  • ..
  • P8292126
  • P8292076
  • eg og bon jovi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 407

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband