afslöppun á hótel mamma :)

Hvað er betra en að slappa af eftir próf hjá mömmu LoL Við Loftur keyrðum austur á fimmtudaginn síðasta og höfðum það nice yfir helgina, grill, tertur og fleira góðgæti LoL Loftur keyrði svo heim á sunnudaginn og ég verð viku lengur. Skrýtið að koma heim eftir prófin og byrja ekki strax að vinna, heldur vera bara í ''heimsókn'' og fara svo aftur suður...

Við Heiða systir erum búnar að bralla ýmislegt, á milli þess sem ég fer í tölvuna spennt að bíða eftir einkunn , er komin með þrjár og er bara mjög sátt Smile Í dag var svo skemmtun bekknum hennar Heiðu og hún vildi endilega bjóða mér en þar sem aðeins foreldrum var boðið ákvað ég nú að vera heima, þegar skemmunin var að byrja þá hringdi pabbi og sagði að ég mætti endilega koma, Heiða var búin að tala við kennarann og fá leyfi, hehe og ekki nóg með það heldur var hún búin að skrá mig í spurningarkeppni, en í henni unnum við Sigga Þrúða og Unnur Ása, Steinar löggu og tvo aðra pabba Tounge Svo höfðu allir bakað og komið með eitthvað gómsætt með sér, við Jóhanna Smára sáum um að smakka Wink og vorum mjög sáttar...

En ætla að fara að fá mér göngu eða eitthvað í góða veðrinu, veitir ekki af eftir svona kökuát Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með prófalokin....vonandi áttu eftir að eiga gott sumar hérna í rvk. 

Kv. Hrafnhildur  

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 13:13

2 Smámynd: Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

takk og sömuleiðis Hrafnhildur.. Skrýtið að vera ekki heima í sumar.. en skemmtu þér í Mexico

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 21.5.2008 kl. 13:40

3 identicon

Gaman að hitta þig Helga mín! Kökurnar voru ljómandi góðar og já takk fyrir hjálpina eftir skemmtunina. Þú og mamma þín eruð alveg milljón ;)

Jóka (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 20:05

4 Smámynd: Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

Gaman að hitta þig sömuleiðis Jóhanna :) mamma er allstaðar mætt í eldhúsið ;)

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 26.5.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég er 23 ára Norðfirðingur :) Ég er að læra félagsráðgjöf í H.Í og bý með kærastanum mínum, honum Lofti í Reykjavík..

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • .
  • ..
  • P8292126
  • P8292076
  • eg og bon jovi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 389

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband