Þróttur NES - HK

Það var þvílík spenna á Þróttur NES - Þróttur RVK í blaki í Laugardagshöllinni í dag, Þróttur N vann auðvitað LoL staðan var 3-2 og fór síðasta hrinan 15-12. Ég var orðin nett stressuð á áhorfendapallinum, held að Helena systir hafi verið ennþá meira stressuð þar sem hún var að keppa þennan leik ;) á morgun verður svo úrslitaleikurinn þar sem Þróttur N mætir HK í laugardalshöll kl: 14:00.

Um síðustu helgi unnu þær Fylki með miklum yfirburðum, við Loftur fórum á föstudagsleikinn og vorum 2 af 3 áhorfendum, en það voru mun fleiri á laugardeginum en þá fór ég ein þar sem Loftur var að vinna.. Helena kom svo og gisti eina nótt, en hún er núna alltaf í Rvk að keppa, man hvað þetta var gaman, MIKIÐ svakalega langar mig í BLAK aftur Pinch 

Við hittumst nokkrar stelpur í vikunni, gömlu bekkjarsysturnar, borðuðum kökur, heita rétti og fleira og spjölluðum, bara gaman :) Svo fórum við Loftur á Brúðgumann, kom á óvart, hrikalega góð mynd og vel leikin. Fórum reyndar fyrir myndina á pizza hut í smáralindinni og ekki í fyrsta sinn þar sem við komum ekkert sérlega happy þaðan út, við munum því ekki fara þangað á næstunni Angry

Annars  förum við ekki austur um páskana þar sem mamma, pabbi og Heiða skíðadrottning verða í bænum um páskana, hlakka til að bjóða þeim í mat í fyrsta skipti og ótrúlegt en satt, þá verður Loftur ekki að vinna... Smile

Þar sem það er eeeeendalaus lærdómur hjá mér ákvað ég að elda eitthvað gott í kvöld (þótt ég sé ein heima) og varð lambafille fyrir valinu, jammí. Ætla að læra eins mikið og ég mögulega get fyrir páskana til að fá smá frí með fjölsk. um páskana :) ætla samt að skella mér í sjópottinn og gufu í laugardalslauginni í fyrramálið, veit fátt betra Cool


Styttist í páskana

Tíminn líður svo hratt að það er alltaf stutt í eitthvað spennandi LoL núna eru það páskarnar sem eru næstir.. þeir sem þekkja mig vita að ég er  nammigrís og fæ mér því eitthvað stórt og flott páskaegg, ég sé nú samt bara um að borða innihaldið og Loftur sjálft eggið ;) í fyrra fékk ég alveg svakalega flott franskt páskaegg frá Lofti en hann var einmitt í Frakklandi á skíðum rétt fyrir páskana.. Mamma, Pabbi og stelpurnar verða svo í bænum um páskana þannig að það verður eflaust brjálað stuð.. Wink

Síðustu helgi eyddi ég í 100% afslöppun í firðinum fagra, ahh... hvað það var notalegt að vera heima hjá mömmu,  kaf snjóaði og var ekta ''inni afslöppunarveður''

Næstu helgi og reyndar allar helgar í Mars verður Helena systir að keppa í bænum (keppa í blaki með meistaraflokk) og ég ætla að sjálfsögðu að kíkja á leikina, þær byrja á að keppa við Fylki um helgina, vona að Loftur komist með Smile


Austur á morgun

Jæja það er komið að því, mætti halda að ég hafi ekki farið heim í mörg ár... En spenningurinn leynir sér ekkert, verst að Loftur kemst ekki með..

Mikið svakalega langar mig í kisu, veit ekki afhverju.. Tengdó var að fá lítinn hvolp sem er alveg hrikalega sætur, ég er ekkert mjög fyrir hunda en hann kom beint til mín í dag ''bað'' mig um að taka sig upp, lagðist á hendurnar á mér og kúrði sig í flíspeysuna Halo bara sætur- spurning hversu lengi hann verður svona lítill og sætur Wink 

Ég er alveg svakalega spennt yfir umræðunni um það að Iceland Express fari að fljúga austur, vona að það gangi í gegn, það má alveg við smá samkeppni, flugið er ekkert eðlilega dýrt Frown

..en ætlum að fara að fá okkur KFC, fyrst Loftur er búinn að ná sér úr flensunni sem hann er búinn að vera með í nokkra daga Sideways


Bara flottur þessi :)

Þessi er bara flottur (maður verður að hafa hljóðið með Tounge), ekki hár í loftinu :)

 


Fjörðurinn fagri :)

Mikið svakalega langar mig heim.. Stefni að því að fara heim helgina 28 feb - 2 mars Wink 

Neskaupstaður

Annars var ég að koma úr afmælisveislu hjá yngri prinsinum hennar Natalíu, gaf honum flotta diesel peysu Cool fékk svo æðislegar kræsingar, svo sem heitan rétt, marengs og súkkulaðiköku, Loftur aldeilis óheppinn að komast ekki, en hann var að vinna...


Nýtt blogg

Langaði aðeins að breyta til, orðin þreytt á blog.central.is ekki það að ég sé öflugur bloggari... Whistling   en sjáum hvernig þetta gengur..

« Fyrri síða

Höfundur

Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég er 23 ára Norðfirðingur :) Ég er að læra félagsráðgjöf í H.Í og bý með kærastanum mínum, honum Lofti í Reykjavík..

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • .
  • ..
  • P8292126
  • P8292076
  • eg og bon jovi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 408

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband