15.3.2008 | 21:21
Þróttur NES - HK
Það var þvílík spenna á Þróttur NES - Þróttur RVK í blaki í Laugardagshöllinni í dag, Þróttur N vann auðvitað staðan var 3-2 og fór síðasta hrinan 15-12. Ég var orðin nett stressuð á áhorfendapallinum, held að Helena systir hafi verið ennþá meira stressuð þar sem hún var að keppa þennan leik ;) á morgun verður svo úrslitaleikurinn þar sem Þróttur N mætir HK í laugardalshöll kl: 14:00.
Um síðustu helgi unnu þær Fylki með miklum yfirburðum, við Loftur fórum á föstudagsleikinn og vorum 2 af 3 áhorfendum, en það voru mun fleiri á laugardeginum en þá fór ég ein þar sem Loftur var að vinna.. Helena kom svo og gisti eina nótt, en hún er núna alltaf í Rvk að keppa, man hvað þetta var gaman, MIKIÐ svakalega langar mig í BLAK aftur
Við hittumst nokkrar stelpur í vikunni, gömlu bekkjarsysturnar, borðuðum kökur, heita rétti og fleira og spjölluðum, bara gaman :) Svo fórum við Loftur á Brúðgumann, kom á óvart, hrikalega góð mynd og vel leikin. Fórum reyndar fyrir myndina á pizza hut í smáralindinni og ekki í fyrsta sinn þar sem við komum ekkert sérlega happy þaðan út, við munum því ekki fara þangað á næstunni
Annars förum við ekki austur um páskana þar sem mamma, pabbi og Heiða skíðadrottning verða í bænum um páskana, hlakka til að bjóða þeim í mat í fyrsta skipti og ótrúlegt en satt, þá verður Loftur ekki að vinna...
Þar sem það er eeeeendalaus lærdómur hjá mér ákvað ég að elda eitthvað gott í kvöld (þótt ég sé ein heima) og varð lambafille fyrir valinu, jammí. Ætla að læra eins mikið og ég mögulega get fyrir páskana til að fá smá frí með fjölsk. um páskana :) ætla samt að skella mér í sjópottinn og gufu í laugardalslauginni í fyrramálið, veit fátt betra
Tenglar
Vinir
- Sæa
- Rut Grundafjarðarmær :)
- Helga Rósa
- Kalli Bróðir
- Hulda Björk
- Borghildur
- Jóhanna Smára
- Pálína
- Anna Hlíf
- Magna
- Ellen
litlu vinir mínir :)
- Dagur Snær sonur Helgu K og Binna
- Arndís Lilja dóttir Helgu Rósu og Geirs
- Alexander Máni
- Alexandra Ösp
- Finnur Örn sonur Ingibjargar og Ómars
- Hugrún Magnea lítil frænka (dóttir Ísaks og Drafnar)
- Oddrún Eik Dóttir Önnu Hlífar og Bjarka
- Gabríel Ísak og Bjarki Fannar synir Myrru og Hjalta
- Litli Prins Jóhönnu og Willa Litli prins Jóhönnu og Willa
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ! Leiðinlegt að þið komið ekki austur um páskana. Kysstu Loft frá mér. Ég þarf að kíkja til ykkar næst þegar ég kem suður. Heyrumst, kæra bloggvinkona
Guðmundur Rafnkell Gíslason, 16.3.2008 kl. 19:23
Þú og þín lambafille haha :)
Sjáumst á morgun skvísa
Vilborg (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 23:29
Sæl vinkona. Ég get trúað að þið hafið verið spenntar, ég var friðlaus í fermingarveislunni sem ég var í fyrr en ég fékk SMS frá Bobbu, sem hljóðai svona: We are the Champion...
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 17.3.2008 kl. 10:00
Hæ Gummi, ég skal kyssa Loft fyrir þig Já þú verður endilega að kíkja í heimsókn næst þegar þú ert á ferðinni
Vilborg, ég verð að bjóða ykkur Möggu í lambafille einhverntímann
Elma, já þetta var svakalegur leikur og gaman að sjá hvað það mættu margir stuðningsmenn, frábært líka að sjá hvað okkar stelpur ætluðu sér að vinna og gerðu það sko sannarlega Bobba átti mörg góð smöss..
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 17.3.2008 kl. 12:04
Smassarinn ógurlegi Þetta var rosalega gaman og þú mátt sko vera stolt af systur þinni, hún stóð sig eins og hetja.
Bobba (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 23:10
Takk Bobba, ég er mjög stolt af henni, er eiginlega bara mjög stolt að vera þróttari eftir svona leik
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 18.3.2008 kl. 19:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.