9.9.2008 | 21:41
Alvaran tekin við..
Þegar byrjar að rigna í Rvk er komið haust og þá byrjar skólinn. Það er byrjað að rigna í Rvk, það er reyndar nokkuð kósí þar sem við búum í ris-íbúð og það er svona sumarbústaðarfílíngur að heyra rigninguna lemja í þakið Annars erum við búin að vera í 10 daga í 35 stiga hita í New York, frábær ferð fyrir utan smá bólgna löpp hjá mér (að ástæðu lausu) ég var hölt í nokkra daga og með vinstri fót eins og fíll Við versluðum ekkert svakalega mikið, enda dollarinn frekar hár þessa dagana og útsölurnar að klárast. Hver segir svo sem að maður þurfi að eyða endalausum pening þegar maður er í sumarfríi? Afslöppun er nauðsynleg, Loftur er búinn að vera að vinna eins og brjálæðingur í sumar. Þó að Manhattan sé kannski ekki staðurinn sem kemur fyrst upp í hugann þegar maður hugsar um afslöppun þá er voða kósí að vera þar við fórum t.d í nudd, á vaxmyndasafn og í Bronx zoo sem er risa stór dýragarður, á leiðinni þangað komst ég í augnsamband við risa rottu sem var að gæða sér á afgöngum í ruslatunnu, ég kastaði vatnsflösku beint í hausinn á greyinu (óvart) og gekk svo í burtu með gæsahúð niður í tær!! Toppurinn á ferðinni var svo að fara í hestvagni um Central Park á afmælinu mínu, frekar fyndið að vera á hestvagni í umferðinni á Manhattan
Stella Rán var svo elskuleg að klukka mig og ég tek auðvitað þátt í því
Fjögur störf sem ég hef unnið við:
Fjarðarbrauð - afgreiðsla og ýmislegt
Fjarðabyggð - flokkstjóri og yfirflokkstjóri
Félgasþjónusta Kópavogs- liðveisla og persónuleg tilsjón.
Reykjavíkurborg - leiðbeinandi
Fjórar bíómyndir sem ég hef horft oft á:
Pay it forward (klárlega uppáhald)
Borat (var góður, það er best að horfa á grínmyndir með Malla frænda )
Grettir (hef sjaldan hlegið jafn mikið)
Elf (allar jólamyndir eru góðar )
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Sæbakki - Neskaupstað
Árblik - Neskaupstað
Laugateigur - Reykjavík
Heiðargerði- Reykjavík
Fjórir sjóvarpsþættir sem ég horfi á:
Simpsons
Nágrannar
Despó
Grey's Anatomy
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Íslenska leiðin, stjórnmálafræði (tilneydd)
Held það séu bara skólabækur (man ekki eftir neinni eins og er allavega)
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Tyrkland
New York
Costa del Sol
Neskaupstaður
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
vísir
mbl
ugla.hi.is
Fernt sem ég held uppá matarkyns:
heimatilbúin pizza hjá mömmu klikkar sko ekki
Lambalæri - sett inn um hádegi
Kjúklingur - sérstaklega kjúklinga baguette (margir sem öfunda mig af því að búa með kokki, hehe)
tertur- fátt betra en jólaboðin hjá Jóhönnu frænku þar sem allir koma með eina sveitta tertu
Tenglar
Vinir
- Sæa
- Rut Grundafjarðarmær :)
- Helga Rósa
- Kalli Bróðir
- Hulda Björk
- Borghildur
- Jóhanna Smára
- Pálína
- Anna Hlíf
- Magna
- Ellen
litlu vinir mínir :)
- Dagur Snær sonur Helgu K og Binna
- Arndís Lilja dóttir Helgu Rósu og Geirs
- Alexander Máni
- Alexandra Ösp
- Finnur Örn sonur Ingibjargar og Ómars
- Hugrún Magnea lítil frænka (dóttir Ísaks og Drafnar)
- Oddrún Eik Dóttir Önnu Hlífar og Bjarka
- Gabríel Ísak og Bjarki Fannar synir Myrru og Hjalta
- Litli Prins Jóhönnu og Willa Litli prins Jóhönnu og Willa
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hæææææj.
bara að heilsa uppá þig.
gengur skólinn ekki alveg ágætlega án mín? :)
Rut Rúnarsdóttir, 12.9.2008 kl. 21:50
Hæ :) Við söknum þín nú alveg smá sko.. :) en það gengur bara mjög vel, þetta styttist :)
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 14.9.2008 kl. 15:10
hææj..:) hehe alltaf gott að slappa af, sérstaklega eftir klikkað sumar.
en b.t.w. þá er heimatilbúin pizza a la Helena hehe í matinn (ég veit á sunnudegi :P) En sé þig eftir 3 daga
knús HKG
Helena (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:12
hææj. aftur .. var aðeins og fljót að ýta á enter en hérna ætlaði bara að segja þér það að stelpurnar sem gistu hérna héldu að Bon Jovi væri kærasti þinn hahaha:D, er með myndnina á veggnum , en mynd af Lofti við hliðin á svo ég benti á hana hahaha , fannst þetta pínu fyndið;)
Helena (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:14
Heimatilbúin pizza klikkar ekki Helena :) en það eru sumir sem vita ekkert hver Bon Jovi er (sem ég skil ekki ) hehe Loftur hefði þurft að vera með á myndinni.. En gangi ykkur vel í svíþjóð
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 18.9.2008 kl. 12:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.