28.5.2008 | 20:01
Prófsýningar eru nauðsynlegar...
Allavega í H.Í, er búin að fá sundurliðun á 3 einkunum hjá mér og allar voru þær rangar.. fékk eitt fall og sendi kennaranum beiðni um sundurliðun þá kom í ljós að í raun hefði ég fengið 8 á prófinu.. svo fékk ég hringingu í morgun frá einum kennara sem baðst afsökunar á því að hafa gefið mér vitlaust og ætlaði að laga það sem fyrst. Þannig að það er nauðsynlegt að fara á prófsýningar ég hef hækkað á þeim öllum á þessari önn útaf ''tæknimistökum kennara''. En ég er mjög sátt með einkunnirnar mínar eftir leiðréttingarnar
Annars er ég komin suður aftur, bara æðislegt fyrir austan, geðveikt veður og 100 % afslöppun, en það var auðvitað líka gott að koma suður til Lofts aftur
Tenglar
Vinir
- Sæa
- Rut Grundafjarðarmær :)
- Helga Rósa
- Kalli Bróðir
- Hulda Björk
- Borghildur
- Jóhanna Smára
- Pálína
- Anna Hlíf
- Magna
- Ellen
litlu vinir mínir :)
- Dagur Snær sonur Helgu K og Binna
- Arndís Lilja dóttir Helgu Rósu og Geirs
- Alexander Máni
- Alexandra Ösp
- Finnur Örn sonur Ingibjargar og Ómars
- Hugrún Magnea lítil frænka (dóttir Ísaks og Drafnar)
- Oddrún Eik Dóttir Önnu Hlífar og Bjarka
- Gabríel Ísak og Bjarki Fannar synir Myrru og Hjalta
- Litli Prins Jóhönnu og Willa Litli prins Jóhönnu og Willa
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er ekki síður nauðsynlegt en t.d. að fara yfir innkaupastrimil í búðum og útreikninga sumra spekinga.
Þegar VIÐ höfum unnið verk (lærdómur, próf) og einhver ANNAR DÆMIR það, er algert lágmark að við fáum að DÆMA DÓMINN!
Gott hjá þér, alltaf hafa augun hjá sér, ekki treysta neinu í blindni.
Til hamingju með prófið og árangurinn! Gleðilega afslöppun
Beturvitringur (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 20:11
Satt, maður þarf að hafa augun á öllu..
En takk!
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 28.5.2008 kl. 21:05
Djöfull er ég ánægð með þig! Til hamingju með þetta! Ég verð að viðurkenna að ég hef ALDREI farið og skoðað prófið mitt Spurning hvort að maður væri bara að fá miklu hærri meðaleinkunn hefði maður gert það...hmmm
En ég er víst búin svo ég ætla ekki að velta mér upp úr þessu núna
Hafðu það gott í sumar sæta
jóka (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 11:04
Takk, sömuleiðis Jóka mín :) Ég hef einmitt ekki aldrei farið fyrr en á þessari önn, en satt að maður má ekki vera að velta sér uppúr því
Ég væri sko alveg til í að vera að klára, en ég byrjaði á að taka 1 ár í sálfræði og þess vegna er ég ekki að útskrifast..
Vona að þú njótir þín fyrir norðan
Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, 4.6.2008 kl. 19:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.